Örn Haraldsson

Teymisþjálfari og markþjálfi

Ég hjálpa teymum og leiðtogum að efla traust, skýrleika og árangursríka samvinnu.

Hvað get ég gert fyrir þig?

Teymisþjálfun

Teymisþjálfun er eins og garðyrkja — það er ekki hægt að tryggja uppskeru, en það er hægt að hlúa að jarðveginum. Ég hjálpa teymum að skapa skilyrði fyrir árangur: skýran tilgang, traust, og vinnulag sem virkar.

Teymisþjálfun er margþætt — en í stuttu máli snýst hún um að hjálpa teymi að eiga þau samtöl sem það þarf að eiga.

Markþjálfun, leiðtogaþjálfun og handleiðsla

Markþjálfun snýst um að finna út hver þú ert, hvað þú raunverulega vilt og vinna út frá því.

Veistu hvert þú ert að fara? Fyrir hvað þú stendur? Hverjir þínir eiginleikar eru? Hvar þeir nýtast vel og hvar ekki? Hvernig leiðtogi þú vilt vera?

Vantar þig þjálfun og/eða handleiðslu í leiðtogahlutverkinu? Við að leiða eigið teymi?

Nám í teymisþjálfun

Næsti hópur fer af stað 4. september 2026.

Alþjóðlega vottað nám (AATC/ICF) fyrir leiðtoga og markþjálfa. Hámark 12 þátttakendur.

Lesa meira →

Vinnustofur og erindi

Ég býð upp á vinnustofur, námskeið og erindi um teymisvinnu, grunnfærni markþjálfunar, endurgjöf og fleira — fyrir hópa og fyrirtæki.

Hvað segir fólkið?

“Örn hefur getu til þess að styðja við teymi á víðtækan hátt, allt frá daglegum málum yfir í sérhæfða vinnu eins og strategíu, gildi og þjálfun við endurgjöf. Töfrar teymisvinnunnar koma með auknu trausti, einingu og skýrleika, og að því getur Örn unnið á einstakan hátt með teyminu.”

— Björk Kristjánsdóttir, þáverandi COO og CFO hjá CRI

“Örn er hálfgerður töframaður þegar kemur að mannlegum samskiptum. Aðkoma hans hefur haft frábær áhrif á samskipti, samvinnu og vinnustaðamenningu hjá GRID, en hér vinnur hann bæði með einstaklingum, stærri hópum og fyrirtækinu í heild. Jákvæðni, orka og einlægni Arnar eru smitandi og hans nálgun öll á þeim nótum sem nútímalegir vinnustaðir ættu að tileinka sér.”

— Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri GRID

“Örn er ekki bara framúrskarandi markþjálfi og teymisþjálfari heldur einnig einstök og góð manneskja með ótrúlega gott innsæi..”

— Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, þáverandi forstöðumaður Customer Experience Development hjá Icelandair

Hver er ég?

Ég er fæddur 1973 og uppalinn í sveit, nánar tiltekið í Gnúpverjahreppnum, langyngstur 8 systkina. Ég er giftur henni Sigrúnu Sigurjónsdóttur og við erum svo lánsöm að eiga einn 12 ára dreng, hann Dag.

Auk markþjálfa- og teymisþjálfaranáms og viðeigandi vottunum frá ICF (PCC, ACTC) þá er ég með B.Sc. í tölvunarfræði, tók jógakennaranám og kennsluréttindi, en fyrst og fremst er ég manneskja, eins og þú.

Lengi vel vann ég í hugbúnaðargeiranum, hérlendis og erlendis, sem starfsmaður og sjálfstætt starfandi, við hin ýmsu verkefni. Frumkvöðlastarf hefur einnig látið á sér kræla og er fyrirtækið Arctic Running (arcticrunning.is) eitt af afsprengjum þess.

Ég hef mikinn áhuga á mannlegri tilvist, sér í lagi samskiptunum og tengslunum okkar á milli og við okkur sjálf.

Ég þarf talsverða hreyfingu og hún spilar lykilhlutverk í minni andlegu og líkamlegu líðan. Ég er frekar jákvæður og opinn, og allajafna stutt í húmorinn (allavega þegar ég passa upp á að hreyfa mig 🙂).

Orn03_s.jpg

Viltu fylgjast með?

Endilega skráðu þig hér á póstlistann minn ef þú vilt fylgjast með því sem ég sendi frá mér.